Að taka verkjalyf
árum saman er ekki besta langtíma lausnin fyrir fólk með mígreni. Þau
slá ekki alltaf á allar gerðir mígrenis og geta leitt af sér aukna tíðni
og styrkleika höfuðverkja. Þetta kallast á ensku „Rebound Headache“ og verður til við ofnotkun
verkjalyfja/lyfja. Til að koma á heilbrigðu jafnvægi og eðlilegri æðastarfsemi
þarf að mæta sérstökum næringarþörfum fólks með mígreni.
MigreLief gæti hjálpað til að uppfylla þessar þarfir.
MigreLief
MigreLief er ætlað mígrenisjúklingum eða fólki sem þjáist
af krónískum mígrenihöfuðverkjum til að koma í veg fyrir eða draga
úr þeim og nota til þess náttúruleg vítamín/fæðubótarefni.
Rannsóknir hafa sýnt að
Migrelief nýtist gegn mígreni og mætir sérstökum
næringarþörfum þessa fólks ásamt því að koma á
heilbrigðu jafnvægi og eðlilegri æðastarfsemi.
Framleiðandi
‑
Markaðsetning
MigreLief er framleitt og markaðsett af Akeso Health Sciences,
L.L.C. en upphaflega rannsóknin var unnin fyrir MigreLief af Curt Hendrix.
Galdurinn
við MigreLief felst í formúlunni sem er sérstök samsetning
náttúrulegra innihaldsefna sem framleiðendur hafa einkaleyfi á, nr. #6068999 og #6500450.
Fyrir þessa
uppfinningu og virkni formúlunnar hefur MigreLief hlotið viðurkenningu
í Ameríku.
MigreLief kom fyrst á markað í Ameríku árið 2010 í núverandi útgáfu
og er fyrsta
alhliða bætiefnið sem styður við og stuðlar að góðu
ástandi æða í heilanum.
Klínískt mat á
virkni
Innihaldsefnin í MigreLief; Riboflavin, Magnesium og Feverfew (Glitbrá)
má m.a finna á lista
,,American Academy
of Neurology Guidelines‘‘sem fyrirbyggjandi efni við mígreni.
Eftirfarandi félög og rannsóknarstofnanir hafa viðurkennt virkni MigreLief formúlunnar
U.S. Headache
Consortium:
American Academy of Family Physicians
American Academy of Neurology
American Headache Society
American College of Emergency Physicians,
American College of Physicians-
American Society of Internal Medicine
American Osteopathic Association
National Headache Foundation
Virkni
Virkni MigreLief felst í blöndun þriggja náttúrulega innihaldsefna
(Riboflavin, Magnesium og Puracol™ Feverfew) í réttum hlutföllum (byggðum á
niðurstöðum klínískra rannsókna) sem jafnast á við að veita
svokallaða þrefalda meðferð ,,Triple Therapy©" Þessi virku innihaldsefni hafa
öll reynst hjálpleg til að fyrirbyggja mígreni og þau hafa
eftirfarandi áhrif:
Trufla boðefnasmíði sem valda bólgu
Koma í veg fyrir ákveðna sýrulosun
Leiðrétta orkuskort í hvatberum fruma
Hamla samloðun blóðflagna (sem veldur breytingum á æðum)
Vinna gegn æðakrampa
Koma á stöðugleika og jafnvægi
Children´s
MigreLief
Children´s MigreLief kom fyrst á markað í Ameríku árið 2010 og
inniheldur sömu náttúrulegu formúluna og venjulegt MigreLief en í helmingi
minna magni og í töflustærð sem hentar börnum.
Viðurkenningar
í Ameríku:
MigreLief hefur hlotið viðurkenningu fyrir
einstaka uppfinningu og virkni í MigreLief formúlunni.
MigreLief er viðurkennt af þúsundum lækna sem
hafa fólk með mígreni í meðferð og færir læknar
á verkjasviði mæla með MigreLief sem náttúrulegu fæðubótaefni fyrir
fólk með mígreni.